Fotbolti.net
28.06.23 - 22:56
Ívan Guðjón Baldursson

Arnar Þór: Pétur eins og minkur í loftinu

Auglýsing
Arnar Þór: Pétur eins og minkur í loftinu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Lengjudeildin

Það var mikill vindur á Seltjarnarnesi er Grótta tók á móti Selfossi í Lengjudeild karla í kvöld.

Arnar Þór Helgason fyrirliði átti góðan leik og stóran þátt í eina marki leiksins, þar sem hann skallaði aukaspyrnu í andlitið á markverði Selfyssinga og þaðan hrökk boltinn af varnarmanni og í netið.

Grótta byrjaði með vindinn í bakið og var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. Leikurinn fjaraði út í síðari hálfleik þar sem tíu Selfyssingum tókst ekki að nýta vindinn til að gera jöfnunarmark.

„Það var smá vindur en svosem enginn hvirfilbylur en Selfyssingar eru með frábært lið. Við þurftum að finna leið til að sigra og sem betur fer náðum við því," sagði Arnar Þór kátur að leikslokum.

„Í staðinn fyrir að vera að spila mikið útfrá markinu með vindinn á móti okkur reyndum við að koma honum frekar upp völlinn og finna Pétur (Theódór Árnason) í loftinu. Hann er eins og minkur í loftinu.

„Við erum að fókusa á einn leik í einu og njóta þess að vera saman og spila frábæran fótbolta. Við reynum að taka góðan bolla saman á Örnu kaffihúsi fyrir leiki og að njóta leikdagsins."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.