Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 28. júlí 2022 11:32
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Vísir 
Pálmi tábrotnaði en vonast til að spila næsta leik
Pálmi Rafn eftir leikinn gegn Val.
Pálmi Rafn eftir leikinn gegn Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pálmi Rafn Pálmason, fyrirliði KR, tábrotnaði í 3-3 jafnteflinu gegn Val í Bestu deildinni en þetta kemur fram á Vísi.

Pálmi segir að brotið sé minni háttar og útilokar ekki að spila næsta leik KR sem er gegn KA á þriðjudaginn.

„Ef ég ræð við verkina á ég ekki að eyðileggja neitt. Ég verð aðeins að bíða og sjá. En ég vona að ég verði nógu sterkur til að hlaupa mig í gegnum þetta." segir Pálmi við Vísi.

Alls verða fjórir í banni þegar KA og KR mætast, tveir úr hvoru liði. Það eru Bryan Van Den Bogaert og Ívar Örn Jóns­son úr KA og Hallur Hansson og Ægir Jarl Jónasson úr KR.

KR er án sigurs í síðustu sex deildarleikjum og situr í sjötta sæti Bestu deildarinnar. KA er í þriðja sæti.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner