Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 28. ágúst 2022 23:54
Brynjar Ingi Erluson
Albert og Sverrir unnu Íslendingaslagi
Sverrir Ingi Ingason
Sverrir Ingi Ingason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sverrir Ingi Ingason og hans menn í PAOK unnu Atromitos, 2-1, í grísku úrvalsdeildinni í kvöld.

Sverrir Ingi spilaði allan leikinn í miðri vörn og PAOK en Viðar Örn Kjartansson kom inná hjá Atromitos á 62. mínútu. PAOK hefur unnið báða leiki sína í deildinni til þessa.

Hörður Björgvin Magnússon var frá vegna smávægilegra meiðsla er Panathinaikos vann OFI Crete, 2-0. Guðmundur Þórarinsson var í byrjunarliði OFI en fór af velli á 64. mínútu. Panathinaikos hefur unnið báða leiki sína en OFI tapað báðum.

Albert Guðmundsson lék allan leikinn í 1-0 sigri Genoa á Pisa í Seríu B á Ítalíu. Hjörtur Hermannsson sat allan tímann á varamannabekk Pisa.

Þá var Guðlaugur Victor Pálsson í liði D.C. United sem tapaði fyrir Atlanta United, 3-2, í MLS-deildinni. Wayne Rooney er þjálfari D.C. United en liðið hefur verið í miklu basli og er í botnsæti Austur-deildarinnar með 22 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner