Fotbolti.net
29.01.25 - 17:41
Brynjar Ingi Erluson

Aston Villa hafnar tilboði Arsenal í Watkins

Aston Villa hafnar tilboði Arsenal í Watkins
Canon

Mynd: EPA

Aston Villa hefur hafnað 60 milljóna punda tilboði Arsenal í enska framherjann Ollie Watkins en það er Fabrizio Romano sem greinir frá tilboðinu í dag.
Arsenal er í dauðaleit að nýjum framherja til að auka möguleika félagsins á að landa fyrsta Englandsmeistaratitlinum í 21 ár.

Margir framherjar hafa verið orðaðir við félagið síðustu vikur og mánuði, en Ollie Watkins virðist efstur á blaði.

Romano segir að Villa hafi í dag hafnað 60 milljóna punda tilboði Arsenal í leikmanninn og er mikil óánægja með tímasetningu tilboðsins, rétt fyrir mikilvægan leik í Meistaradeildinni.

Villa er í viðræðum um að selja kólumbíska sóknarmanninn Jhon Duran til Al Nassr í Sádi-Arabíu og kemur því ekki til greina að leyfa Watkins að fara í glugganum.

Watkins hefur gert 10 deildarmörk með Villa á tímabilinu og gefið fimm stoðsendingar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.