Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   mið 29. janúar 2025 12:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Hefði getað hitt á dúndur tímabil úti og fengið þrisvar sinnum hærri samning en hjá Val"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ungir leikmenn sem koma heim til að spila í Bestu deildinni eftir að hafa verið erlendis voru til umræðu í hlaðvarpsþættinum Steve Dagskrá í gærkvöldi. Andri Geir Gunnarsson þáttarstjórnandi ræddi við þá Björn Daníel Sverrisson, fyrrum atvinnumann og nú leikmann FH, og þjálfarann Jón Pál Pálmason.

Jónatan Ingi Jónsson var tekinn fyrir en Björn Daníel spilaði með honum í meistaraflokki FH og Jón Páll þjálfaði hann í yngri flokkum FH. Jónatan kom heim til Íslands síðasta vetur eftir þrjú ár hjá norska félaginu Sogndal.

Hann átti kafla á síðasta tímabili, fyrri hluta móts, þar sem hann var einn allra besti leikmaður deildarinnar, ef ekki sá besti.

„Besta dæmið (um leikmann sem ætti að vera úti), vonandi heyrir hann þetta, er Jónatan Ingi Jónsson. Ef ég ætti að nefna einn gaur sem mér finnst besti sóknarmaður á landinu, þá er það Jónatan Ingi. Hann er örugglega að fá vel borgað fyrir að spila fótbolta á Íslandi. Ég var með honum í FH, hann var bestur hjá okkur áður en hann fór út, hann kemur svo heim og sé hversu djöfull góður hann er í fótbolta. Að hann geti ekki spilað einhvers staðar annars staðar en á Íslandi... ég veit að hann getur það. Hann á að geta spilað einhvers staðar annars staðar en t.d. með Sogndal í Noregi," sagði Björn Daníel.

„Hann gat farið í sænsku úrvalsdeildina. En svo setur þú þetta á borðið: hann gat farið í sænsku úrvalsdeildina og harkað með fjölskylduna úti, eða hann gat komið heim, fengið jafnvel ef ekki betur borgað hjá Val og með allt baklandið með sér. Maður hugsar þá af hverju hann ætti ekki að koma heim?" sagði Jón Páll. Jónatan er 25 ára og verður 26 ára í mars. Jón Páll skaut því inn að Jónatan gæti farið aftur út.

„Lið eru ekki að leita að 27 ára gömlum leikmönnum lengur," sagði Björn Daníel.

„Ég er 100% sammála þér, maður veltir því bara fyrir sér þegar barn númer tvö er á leiðinni, þú ert að fá vel borgað í Val og ert með allt í kringum þig..." sagði Jón Páll.

„Svo hefði þessi gæi getað hitt á dúndur tímabil úti og fengið þrisvar sinnum hærri samning en hjá Val. Mér finnst hann það góður," sagði Björn Daníel.

Jónatan var á Fotmob með næsthæstu meðaleinkunnina á síðasta tímabili á eftir Gylfa Þór Sigurðssyni. Á Sofascore var hann með fjórðu hæstu meðaleinkunnina. Jónatan skoraði ellefu mörk og lagði upp átta í 26 deildarleikjum á síðasta tímabili og tvö mörk í bikarnum.

Athugasemdir
banner
banner
banner