Fotbolti.net
29.01.25 - 16:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hörmulegum kafla Gerrard í Sádi-Arabíu að ljúka

Steven Gerrard.

Steven Gerrard.

Canon

Mynd: Getty Images

Steven Gerrard er að hætta sem stjóri Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu. Fabrizio Romano, íþróttafréttamaðurinn frægi, talar að um sameiginlega ákvörðun sé að ræða.

Gerrard hefur ekki riðið feitum hesti í Sádi-Arabíu og mikið verið talað um það á síðustu mánuðum að starf hans hafi verið í hættu.
Gerrard stýrði Al-Ettifaq í 55 leikjum og unnust 19 þeirra.

Gerrard, sem er 44 ára, er mikil goðsögn hjá Liverpool eftir leikmannaferilinn sem hann átti þar. Það var búist við því fyrir nokkrum árum að hann yrði stjóri Liverpool eftir að Jurgen Klopp hætti en annað kom á daginn. Hann náði ekki að sanna sig þegar að því kom.

Hann hefur stýrt Al-Ettifaq frá 2023 en þar áður var hann hjá Aston Villa og náði ekki góðum árangri þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.