Fotbolti.net
29.01.25 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ziyech á leið til Katar - Hraunaði yfir stjórann

Ziyech á leið til Katar - Hraunaði yfir stjórann
Canon

Mynd: EPA

Hakim Ziyech er á leið til Al Duhail í Katar frá Galatasaray.
Ziyech 31 árs gamall landsliðsmaður Marokkó en hann gekk til liðs við Galatasaray frá Chelsea árið 2023.

Hann hefur verið allt annað en sáttur hjá Galatasaray en hann sagði frá því í viðtali í síðasta mánuði að hann vildi yfirgefa félagið þar sem hann væri alls ekki hrifinn af Okan Buruk, stjóra liðsins.

„Þetta er búið hjá mér í Galatasaray. Ég vil ekki spila hér lengur. Ég mun fara í janúar. Ég hef aldrei upplifað það áður að spila fyrir svona lélegan þjálfara."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.