Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 29. mars 2020 20:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Pogba: Erum tilbúnir til að vinna titla
Paul Pogba.
Paul Pogba.
Mynd: Getty Images
Paul Pogba og Jesse Lingard sendu kveðjur til stuðningsmanna í dag í þætti sem Manchester United stendur fyrir og nefnist „United hangout"

Framtíð Paul Pogba er eitt vinsælasta umræðuefni enskra fjölmiðla, miða við hvað Pogba sagði í dag er hann greinilega orðinn spenntur fyrir því að snúa aftur á völlinn í treyju Manchester United.

„Farið varlega og haldið ykkur heima við. Haldið áfram að styðja Manchester United og vonandi verður allt betra sem allra fyrst, við munum byrja spila að nýju og sýna ykkur að við séum tilbúnir til að vinna leiki og titla," sagði Pogba.

Pogba hefur ekki komið mikið við sögu á þessu tímabili vegna meiðsla, það var farið að styttast verulega í endurkomu hans þegar öllum fótbolta var frestað vegna kórónuveirunnar í byrjun þessa mánaðar.


Athugasemdir
banner
banner
banner