Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. mars 2023 22:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Glódís fær hrós fyrir sína frammistöðu - Ljósið í myrkrinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bavarian Football Works er vefsíða sem fjallar um Bayern Munchen á einn eða annan hátt.


Síðan gaf leikmönnum kvennaliðsins ákveðnar einkunnir fyrir frammistöðu sína í tapinu gegn Arsenal í kvöld.

Varnarleikur liðsins var ekki upp á marga fiska en markvörður liðsins var maður leiksins að þeirra mati. Glódís var þó talin vera ljósi punkturinn í varnarlínunni.

Hún fékk titilinn 'Keisarinn' frá Bavarian Football Works.

„Liðið í heild sinni var ekki að sýna neina svaka takta, þá sérstaklega varnarlínan. Arsenal sótti og sótti að Bayern sem hafði engin svör. Við gefum Glódísi þetta fyrir að taka fast skot af stuttu færi í andlitið, vonandi er í lagi með hana. Hún bjargaði á línu og varði tvö skot og vann flesta skallabolta sem hún fór í."

Það er hægt að lesa greinina með því að smella hér.


Athugasemdir
banner
banner
banner