Fotbolti.net
29.04.23 - 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Blikar ekki með varamarkvörð - „Það er galið rugl"

Brynjar Atli Bragason var fjarri góðu gamni í gær.

Brynjar Atli Bragason var fjarri góðu gamni í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það vakti athygli í gær að Breiðablik var ekki með varamarkvörð á bekknum 5-4 sigrinum ótrúlega gegn Fram í Bestu deildinni í gær.
Lestu um leikinn: Breiðablik 5 - 4 Fram
Brynjar Atli Bragason, varamarkvörður Breiðabliks, var fjarri góðu gamni þar sem hann er staddur á Ítalíu hjá kærustu sinni, landsliðskonunni Alexöndru Jóhannsdóttur.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Blika, greindi frá þessu á Stöð 2 Sport fyrir leikinn. „Brynjar Atli er erlendis í heimsókn hjá kærustu sinni. Hann fékk leyfi til að fara."

Það er óhætt að segja að Óskar hafi þarna tekið ákveðna áhættu, að vera ekki með varamarkvörð til taks.

Þorkell Máni Pétursson var sérfræðingur fyrir leikinn hjá Stöð 2 Sport en hann var ekki hrifinn af því að Blikar væru ekki með varamarkvörð. „Ég verð að segja að það er galið rugl að vera ekki með varamarkvörð. Hvaða grín er það?"

Máni setti spurningamerki við það af hverju markvörður úr 2. flokki kæmi ekki inn í hópinn. Sóknarmaðurinn Klæmint Olsen kom inn í hópinn í stað Brynjars og hann gerði sigurmarkið á lokasekúndum leiksins.

Sjá einnig:
Meðeigandi apóteks samhliða fótboltanum þrátt fyrir ungan aldur
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.