Haukar, sem spila í 1. deild kvenna, unnu KR úr Pepsi Max-deildinni 2-1 í æfingaleik í Vesturbænum í gær.
Öll mörkin komu í fyrri hálfleik en Haukar sneru taflinu við eftir að hafa lent undir.
Öll mörkin komu í fyrri hálfleik en Haukar sneru taflinu við eftir að hafa lent undir.
KR 1 - 2 Haukar
1-0 Alma Mathiesen
1-1 Elín Björg Símonardóttir
1-2 Heiða Rakel Guðmundsdóttir
Í dag eru nákvæmlega tvær vikur í að KR mæti Val í opnunarleik Pepsi Max-deild kvenna en Haukar hefja leik í 1. deildinni eftir þrjár vikur gegn Augnabliki.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir