Donni: Sýnir stórkostlegan karakter að koma til baka eftir þessi högg í kjaftinn
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór/KA vann í dag 3-2 sigur á Val í 8-liða úrslitum Mjólkurbikar kvenna. Þór/KA komst yfir eftir um tíu mínútna leik þegar Sandra Mayor fylgdi á eftir vítaspyrnu sinni. Valur jafnaði leikinn skömmu síðar þegar Margrét Lára skoraði úr vítaspyrnu. Staðan var 1-1 í hálfleik.
Í seinni hálfleik skoraði Sandra Mayor sitt annað mark eftir flotta sókn. Valur jafnaði leikinn aftur þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum en Lára Kristín Pedersen svaraði skömmu síðar þegar hún fylgdi á eftir góðri aukaspyrnu frá Þórdísi Hrönn. Þór/KA hélt út og er komið áfram í undanúrslit.
Lestu um leikinn: Þór/KA 3 - 2 Valur.
Halldór Jón Sigurðsson, Donni, þjálfari Þór/KA, var í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn í dag. Þar var Donni spurður út í leikinn, breytingar frá síðasta leik og breytingar á hópnum.
„Mér líður stórkostlega, mjög ánægður með þennan leik í heild sinni. Að koma alltaf aftur til baka eftir að fá þessi högg i kjaftinn sýnir stórkostlegan karakter í okkar liði," sagði Donni eftir leik.
„Ég var pínu stressaður í lokinn. Valsliðið eða landsliðið er hörkulið en stelpurnar kláruðu sitt frábærlega".
„Við breytum nálguninni frá síðasta leik þar sem mótherjinn í dag var töluvert sterkari en í síðasta leik. Munur að spila gegn liði sem liggur til baka í vörn og liði sem er framarlega. Orkan í þessum leik var meiri og við náðum að nýta okkur eyður í þeirra vörn."
„Bryndís er alltaf að drepast í bakinu en hún berst og deyr fyrir liðið sitt og gerði það frábærlega í dag."
„Margrét (Árnadóttir) er farin til Bandaríkjana að sanna sig fyrir nýjum þjálfara þar sem hún er að fara í nám."
„Iris (Achterhof) er farin heim til Hollands og fer svo til Englands í skóla."
„Andrea Mist (Pálsdóttir) fer í ágúst í skóla og svo missum við þrjár aðrar í skóla. Við sjáum til hvernig við bregðumst við því á næstu dögum."
Donni var einnig mjög ánægður með stemninguna á leiknum í dag en stuðningsmenn beggja liða létu vel heyra í sér í dag.
Viðtalið í heild sinni má sjá efst í fréttinni.