Gianluigi Buffon og Giorgio Chiellini hafa framlengt samninga sína við Ítalíumeistara Juventus út næsta tímabil.
Fyrrum samningar þeirra áttu að renna út á morgun en það var þó alltaf ljóst að þeir væru að fara að framlengja.
Fyrirliðinn Chiellini verður 36 ára í ágúst og hefur sagt að hann ætli að spila að minnsta kosti eitt ár í viðbót.
Hann hefur verið hjá Juve síðan 2005, er með 509 mótsleiki og 36 mörk.

Buffon er með 669 leiki fyrir Juventus síðan hann kom frá Parma árið 2001.
Hann var eitt tímabil hjá Paris Saint-Germain en mætti aftur til Juventus fyrir yfirstandandandi tímabil. Hann hefur verið varamarkvörður á þessu tímabili.
Juventus er með fjögurra stiga forystu í ítölsku A-deildinni og stefnir á að vinna Ítalíumeistaratitilinn níunda árið í röð.
Athugasemdir