Haaland verður með riftunarákvæði - Real Madrid ætlar að fá Saliba - Antony til Newcastle?
   mán 29. júlí 2024 10:00
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Selfoss 
Topplið 2. deildar missir leikmenn út í nám
Jón Vignir Pétursson og Ívan Breki Sigurðsson.
Jón Vignir Pétursson og Ívan Breki Sigurðsson.
Mynd: Selfoss
Jón Vignir Pétursson og Ívan Breki Sigurðsson hafa leikið sinn síðasta leik fyrir Selfoss á tímabilinu en þeir halda nú út til Bandaríkjanna í háskóla.

Selfyssingar eru á toppi 2. deildarinnar, með sex stiga forystu, og kvaddi Jón Vignir með stæl en hann skoraði sigurmarkið í toppslag gegn KFA um helgina.

Leikmennirnir báðir hafa leikið lykilhlutverk á tímabilinu, Jón með fyrirliðabandið á miðjunni og Ívan í vörninni, þá aðallega í hægri bakverðinum.

„Jón mun stunda nám við Seton Hall University í New Jersey fylki í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun. Ívan verður á svipuðum slóðum eða í Sacred Heart University í Connecticut fylki, einnig í viðtskiptafræði. Báðir munu þeir spila með liðum sinna skóla.
Báðir leikmennirnir eru áfram samningsbundnir Selfoss og verða mættir í vínrauðu treyjuna næsta sumar!"
segir í tilkynningu Selfyssinga.

Næsti leikur Selfoss í 2. deildinni verður gegn Víkingi Ólafsvík á Selfossi á fimmtudag.
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Selfoss 21 16 2 3 49 - 25 +24 50
2.    Völsungur 21 12 4 5 42 - 26 +16 40
3.    Þróttur V. 21 12 3 6 55 - 33 +22 39
4.    Víkingur Ó. 21 11 6 4 47 - 29 +18 39
5.    KFA 21 11 2 8 49 - 38 +11 35
6.    Haukar 21 9 3 9 40 - 39 +1 30
7.    Höttur/Huginn 21 8 3 10 38 - 48 -10 27
8.    Ægir 21 6 6 9 27 - 33 -6 24
9.    KFG 21 5 5 11 36 - 42 -6 20
10.    Kormákur/Hvöt 21 5 4 12 18 - 39 -21 19
11.    KF 21 5 3 13 24 - 47 -23 18
12.    Reynir S. 21 4 3 14 27 - 53 -26 15
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner