mán 29. ágúst 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Sýndi Richarlison hvar Davíð keypti ölið - „Hvernig hélt hann að þetta myndi enda öðruvísi?"
Richarlison elskar að hækka blóðþrýstinginn hjá mönnum
Richarlison elskar að hækka blóðþrýstinginn hjá mönnum
Mynd: EPA
Brasilíumaðurinn Richarlison er alls ekki allra og annað hvort eru menn með eða á móti honum, en tilþrif hans á vellinum geta oft farið í taugarnar á andstæðingunum og átti eitt slíkt atvik sér stað í 2-0 sigri Tottenham á Nottingham Forest í gær.

Richarlison kom inná sem varamaður í síðari hálfleiknum og lagði upp annað markið fyrir Harry Kane.

Hann beitir alls konar brellum á vellinum og gerir í því að pirra andstæðinginn, en í gær fékk Brennan Johnson, leikmaður Forest, sig fullsaddan og tæklaði hann í grasið.

Richarlison fór að halda á lofti á vinstri vængnum, væntanlega í leit að viðbrögðum frá andstæðingnum og þau viðbrögð stóðu ekki á sér. Johnson tók hann niður og rúllaði Richarlison eftir grasinu.

„Ég myndi ekki vilja að mínir leikmenn gerðu þetta, það sem Richarlison gerði. Ef þetta er samþykkt hjá Spurs þá hefur það ekkert með mig að gera en það er ekki tekið vel í þetta hérna," sagði Steve Cooper, stjóri Forest.


Athugasemdir
banner
banner
banner