Fotbolti.net
29.08.24 - 08:22
Elvar Geir Magnússon

Kepa til Bournemouth (Staðfest)

Kepa til Bournemouth (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildarfélagið Bournemouth hefur fengið spænska markvörðinn Kepa Arrizabalaga lánaðan frá Chelsea. Kepa er 29 ára og var hjá Real Madrid á lánssamningi á síðasta tímabili.

Hinn 35 ára gamli Brasilíumaður Neto hefur spilað í marki Bournemouth í fyrstu þremur leikjum tímabilsins.

„Það er mikið gleðiefni að fá leikmann á borð við Kepa til Bournemouth. Við vissum að það væri möguleiki á að fá hann og ákváðum að nýta tækifærið," segir Neill Blake, framkvæmdastjóri Bournemouth.

Kepa er dýrasti markvörður heims eftir að Chelsea keypti hann árið 2018 fyrir 71 milljón punda frá Athletic Bilbao. Hann framlengdi í vikunni samning sinn við Chelsea til 2026.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.