Fotbolti.net
29.08.24 - 14:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Wout Weghorst til Ajax (Staðfest)

Wout Weghorst til Ajax (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ajax hefur gengið frá kaupum á Wout Weghorst frá Burnley. Hollenski framherjinn skrifar undir tveggja ára samning í Amsterdam.

Weghorst kom til Burnley í janúar 2022 en kom einungis við sögu í 22 leikjum fyrir félagið.

Hann var lánaður til Besiktas og Manchester United á þarsíðasta tímabili og á síðasta tímabili lék hann með Hoffenheim.
Weghorst er 32 ára og hefur skorað tólf mörk í 39 landsleikjum. Hjá Ajax verður hann liðsfélagi Kristians Nökkva Hlynssonar.

Ajax er sagt greiða um 5 milljónir evra fyrir Weghorst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.