Kristinn Freyr: Ætlum að gera betur í Evrópukeppni
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristinn Freyr Sigurðsson var strax byrjaður að hugsa um næsta tímabil þegar hann var tekinn tali eftir að Valur varð Íslandsmeistari annað árið í röð í dag. Valur sigraði Keflavík í lokaumferðinni, 4-1, og tryggði sér þar með titilinn.
„Þetta var ein af ástæðunum fyrir því að ég kom heim (að vinna titilinn), en á næsta ári þá gerum við betur í Evrópukeppni," sagði Kristinn sem kom heim úr atvinnumennsku fyrir tímabilið.

„Þetta er ólýsanlegt. Þetta er í fyrsta sinn sem ég er Íslandsmeistari, vonandi ekki það seinasta."
„Við erum ekki búnir að spila eins vel og við hefðum viljað en maður hefur nú heyrt ýmsar klisjar eins og það er erfiðara að verja titil en að vinna hann. Sem betur fer náðum við að verja hann. Við ætlum að vinna aftur á næsta ári."
„Auðvitað langar okkur í meira. Við verðum að byggja á okkar reynslu í Evrópukeppninni og koma sterkari inn á næsta ári," sagði Kristinn Freyr.
„Það er mjög gaman að vera Valsari í dag."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.