Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   mið 29. nóvember 2023 16:58
Elvar Geir Magnússon
Man Utd spilar á rennandi blautum velli í Tyrklandi
U19 lið þessara félaga mættust fyrr í dag í borginni í Evrópukeppni unglingaliða og þar var völlurinn á floti.
U19 lið þessara félaga mættust fyrr í dag í borginni í Evrópukeppni unglingaliða og þar var völlurinn á floti.
Mynd: Getty Images
Klukkan 17:45 hefst leikur Galatasaray og Manchester United í Tyrklandi. Það hefur rignt hressilega í Istanbúl í dag og umræða verið í gangi um mögulega frestun.

Stephen Warnock er á vellinum fyrir breska ríkisútvarpið og segir hann að veðrið sé virkilega slæmt og vegir verið á floti þegar hann fór á völlinn.

Vangaveltur hafa verið í gangi um að færa leikinn mögulega á morgundaginn en UEFA hefur sagt að hann muni fara fram á tilsettum tíma.

U19 lið þessara félaga mættust fyrr í dag í borginni í Evrópukeppni unglingaliða og þar var völlurinn nánast eins og sundlaug og hellirigning eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Leikurinn í kvöld er gríðarlega mikilvægur en Manchester United fellur úr leik í Meistaradeildinni ef liðið tapar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner