Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 29. desember 2019 18:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arteta um Jorginho: Fyrir mér mjög skýrt
Jorginho á sprettinum.
Jorginho á sprettinum.
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, hefði viljað sjá Jorginho, miðjumann Chelsea, fá sitt annað gula spjald áður en hann skoraði jöfnunarmark sinna manna á 83. mínútu.

Craig Pawson sleppti því að gefa Jorginho gult spjald fyrir brot á Matteo Guendouzi. Það hefði verið annað gula spjald Jorginho og hefði hann því fengið rautt.

Jorginho skoraði svo jöfnunarmark Chelsea áður en Tammy Abraham skoraði sigurmarkið.

Arteta var spurður út í Jorginho á blaðamannafundi og sagði hann fyrst: „Það er fyrir ykkur að ákveða." Blaðamaðurinn spurði svo Arteta út í hans skoðun og þá sagði hann: „Fyrir mér var þetta mjög skýrt. Það er bara þannig."

Fyrir áhugasama þá er hægt að sjá brotið hérna.
Athugasemdir
banner
banner
banner