Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 30. janúar 2023 21:44
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: West Ham vann sér inn ferð á Old Trafford
Mynd: EPA

Derby 0 - 2 West Ham
0-1 Jarrod Bowen ('10)
0-2 Michail Antonio ('50)


West Ham United er komið í 16-liða úrslit enska bikarsins þar sem liðið heimsækir Manchester United á Old Trafford.

West Ham lagði C-deildarlið Derby County að velli í kvöld með tveimur mörkum gegn engu.

David Moyes tefldi fram sterku byrjunarliði þar sem Flynn Downes fékk þó tækifæri á miðjunni.

Jarrod Bowen kom Hömrunum yfir snemma leiks eftir skemmtilegt samspil við Tomas Soucek en heimamenn í Derby sýndu fína takta án þess þó að takast að skora.

Þess í stað tvöfaldaði Michail Antonio forystuna með skalla af stuttu færi eftir undirbúning frá Bowen, sem fær þó ekki skráða stoðsendingu því fyrirgjöf hans fór af varnarmanni.

Derby átti fínan leik en réði ekki við sterkan varnarleik Hamranna.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner