Fotbolti.net
<b>Spá þjálfara í 2. deild:</b> 7. sæti

30.04.23

Spá þjálfara í 2. deild: 7. sæti

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Nýliðum Dalvíkur/Reynis er spáð sjöunda sætinu.
Spáin:
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7. Dalvík/Reynir, 63 stig
8. Völsungur, 53 stig
9. Víkingur Ó., 46 stig
10. KV, 42 stig
11. KF, 32 stig
12. KFG, 19 stig

Lokastaða í fyrra: Dalvík/Reynir féll úr 2. deild sumarið 2020 og eftir vonbrigðarsumar 2021 þá komst liðið upp úr 3. deild í fyrra með því að enda í öðru sæti deildarinnar. Þrátt fyrir að vera nýliðar þá er Dalvíkingum spáð góðu gengi í sumar.

Þjálfarinn: Hinn reynslumikli Dragan Stojanovic stýrir skútunni á Dalvík. Hann tók við liðinu eftir að þeir komust upp á síðasta ári. Pétur Heiðar Kristjánsson hætti með Dalvík/Reyni eftir síðustu leiktíð og fór að þjálfa hjá Þór/KA. Dragan var ráðinn í hans stað en hann hefur þjálfað fjölda liða, þar á meðal Þór, Völsung, KF og Fjarðabyggð.Dragan, sem er með UEFA Pro þjálfaragráðu, gerði tveggja ára samning við Dalvík/Reyni

Álit Ástríðunnar
Hlaðvarpsþátturinn Ástríðan er leiðandi í umfjöllun um 2. deild. Þáttarstjórnendur gefa sitt álit á liðunum fyrir mót.
Úr leik hjá Dalvík á síðasta tímabili.
Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Úr leik hjá Dalvík á síðasta tímabili.
Um Dalvík/Reynir segja þeir: Náðu tveimur góðum skriðum í fyrra og tryggðu sig upp. Þjálfararnir hætta og þeir sækja í reynslu frá gömlu Júgóslavíu. Dragan kann þetta, hefur gert þetta allt áður og við höfum litlar áhyggjur af þeim. Gera mjög vel á markaðnum í vetur og halda sínum sterkustu mönnum. Eiga menn sem hafa verið tíðir gestir í liðum ársins hjá Ástríðunni.

Styrkleikar: Líkt og mörg lið fyrir norðan þá er það heimavöllurinn. Þeirra er reyndar gervigras og styrkleikinn felst kannski frekar í þessu Hostile crowd sem andstæðingarnir mæta á Dalvík. Margir norðanmenn, margir verið lengi í Dalvík og svo er reynsla þjálfarans líka mikill styrkleiki.

Veikleikar: Þeir eru ekki margir. Við vitum hver á að skora mörkin, við vitum hver á að stýra og fara fyrir liðinu. Kannski helst reynsluleysi markmannsins en Auðun Ingi kemur nýr inn og mun hefja mótið.

Lykilmenn: Þröstur Mikael Jónasson, Áki Sölvason og Borja Lopez.
Dragan Stojanovic tók við liðinu í vetur. Hér er hann með markverðinum Auðuni Inga Valtýssyni.
Dalvík/Reynir
Dragan Stojanovic tók við liðinu í vetur. Hér er hann með markverðinum Auðuni Inga Valtýssyni.
Gaman að fylgjast með: Gunnlaugur Rafn Ingvarsson, miðjumaður fæddur 2003 sem hefur spilað vel með Dalvík undanfarin 2 ár. Gæti tekið næsta skref ef hann heldur uppteknum hætti í sumar.

Komnir
Angantýr Máni Gautason frá Dalvík/Reyni
Auðunn Ingi Valtýsson frá Þór (á láni)
Áki Sölvason frá KA
Björn Ísfeld Jónasson frá Þór
Hamdja Kamara frá Spáni
Jón Óskar Sigurðsson frá Magna
Kári Gautason frá KA (á láni)
Sigfús Fannar Gunnarsson frá Þór (á láni)
Toni Tipuric frá Króatíu
Tómas Þórðarson frá Hömrunum
Þorvaldur Daði Jónsson frá KA (á láni)

Farnir
Bjarki Freyr Árnason í Hamrana
Jón Björgvin Kristjánsson í Samherja
Kristján Freyr Óðinsson í Samherja
Matthew Woo Ling til Bandaríkjanna

Þjálfarinn segir - Dragan Stojanovic
„Mér líst ágætlega á þessa spá. Og mér finnst það eðlilegt fyrir lið sem var að koma upp úr 3. deild að því sé spáð í 7. sæti. Ég er spenntur fyrir sumrinu. Við erum búnir að fá nokkra unga og góða leikmenn frá Þór og KA og eigum góða unga heimamenn. Mér finnst þetta spennandi lið hjá okkur. Einnig ætlum við að hafa 2-3 útlendinga til að hafa með okkar ungu leikmönnum. Deildin verður sterk í ár og mjög spennandi. Við hlökkum til að mæta í leiki sumarsins. Aðstaðan á Dalvík er fyrsta flokks og stemningin á Dalvíkurvelli er alltaf góð."
Markahrókurinn Áki Sölvason er mættur á Dalvík.
Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Markahrókurinn Áki Sölvason er mættur á Dalvík.
Fyrstu þrír leikir Dalvíkur/Reynis:
6. maí, Víkingur Ó. - Dalvík/Reynir (Ólafsvíkurvöllur)
13. maí, Dalvík/Reynir - KFG (Dalvíkurvöllur)
20. maí, Haukar - Dalvík/Reynir (Ásvellir)
Frá Dalvíkurvelli.
Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Frá Dalvíkurvelli.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.