Sterkasta lið 9. umferðar - Botnliðið skellti meisturunum

Jón Gísli Eyland var valinn maður leiksins þegar ÍA vann Íslandsmeistara Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Aðalsteinsson (til hægri) var maður leiksins þegar KA vann Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Jó var maður leiksins þegar Valur vann Aftureldingu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Gísli Eyland var valinn maður leiksins þegar ÍA vann Íslandsmeistara Breiðabliks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Uppstigningardagur innihélt heila umferð í Bestu deild karla. Hér er Sterkasta lið 9. umferðar, í boði Steypustöðvarinnar.
Víkingur er með fjögurra stiga forystu á toppnum eftir að hafa unnið 1-0 útisigur gegn Vestra í toppslag. Víkingar gáfu nánast engin færi á sér og þeir Oliver Ekroth og Gunnar Vatnhamar voru hrikalega öflugir í vörninni. Sölvi Geir Ottesen er þjálfari umferðarinnar.

Breiðablik tapaði 1-4 gegn ÍA en þetta var annar tapleikur Blika í röð. Skagamenn eiga þrjá fulltrúa í úrvalsliðinu. Jón Gísli Eyland Gíslason var með áætlunarferðir á vængnum og valinn maður leiksins, Ómar Björn Stefánsson skoraði eitt mark og lagði upp annað og Árni Marinó Einarsson átti góðan leik í markinu.
Valsmenn unnu 2-0 útisigur gegn Aftureldingu. Aron Jóhannsson skoraði sitt fyrsta mark síðan 2023 og var maður leiksins. Lúkas Logi Heimisson náði í vítið sem Valur skoraði fyrra markið úr og hann lagði svo upp annað markið.
Alex Þór Hauksson mætti sínum gömlu félögum og var stórkostlegur. Tvær stoðsendingar og frábært mark aðeins eftir aðeins ellefu mínútur. Stjarnan vann 4-2 sigur gegn KR sem tapaði þriðja deildarleik sínum í röð.
KA vann dramatískan útisigur gegn Fram og á tvo fulltrúa. Bjarni Aðalsteinsson átti þátt í báðum mörkum KA í 2-1 mikilvægum sigri liðsins. Birgir Baldvinsson er einnig í úrvalsliðinu.
Þá vann ÍBV dramatískan 2-1 sigur gegn FH. Hermann Þór Ragnarsson var maður leiksins. Hann var öflugur og kraftmikill í sóknarleik ÍBV og skoraði fyrra mark liðsins.
Fyrri úrvalslið:

TENGT EFNI
Sterkasta lið 8. umferðar - Átti stórleik en það dugði skammt

TENGT EFNI
Sterkasta lið 7. umferðar - Enginn úr leiðinlegasta leik tímabilsins

TENGT EFNI
Sterkasta lið 6. umferðar - Valsmenn vængjum þöndum

TENGT EFNI
Sterkasta lið 5. umferðar - Gylfi stimplar sig inn

TENGT EFNI
Sterkasta lið 4. umferðar - KR-ingar fóru hamförum

TENGT EFNI
Sterkasta lið 3. umferðar - Fjórir fulltrúar Aftureldingar

TENGT EFNI
Sterkasta lið 2. umferðar - Níu markaskorarar

TENGT EFNI
Sterkasta lið 1. umferðar - Flugstart á Bestu deildinni