Stefán Ingi kvaddi Breiðablik í kvöld: Þeir hefðu viljað fá mig fyrr
Auglýsing

Stefán Ingi Sigurðarson fer til Belgíu um helgina.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik vann Buducnost fá Svartfjallalandi 5-0 á Kópavogsvelli í kvöld og er þar með komið í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Blikar höfðu mikla yfirburði í kvöld eins og tölurnar gefa til kynna.
Stefán Ingi Sigurðarson skoraði eitt af mörkum Breiðabliks en hann fékk heiðursskiptingu í kveðjuleik sínum. Hann er að ganga í raðir Patro Eisden í belgísku B-deildinni og flýgur út á sunnudag til að fara í læknisskoðun og skrifa undir.

„Það er gaman að skilja við félagið og liðið svona, á góðum 5-0 sigri þar sem við höldum hreinu í Evrópuleik. Þetta voru mínir fyrstu leikir í Evrópu og ég er mjög sáttur að klára þetta svona," segir Stefán.
Er erfitt að skilja við Breiðablik á þessum tímapunkti?
„Þetta er ekki það léttasta í heimi. Við erum í Evrópu og undanúrslit í bikarnum á næsta leyti. Við erum að keppa í þremur keppnum og mér finnst ég hafa fallið rosalega vel inn í liðið. Það er erfitt að skilja við hópinn, þegar maður er að detta inn í þetta er maður strax farinn."
Hlutirnir hafa gerst hratt hjá Stefáni sem var að skora fyrir HK í Lengjudeildinni í fyrra þar sem hann var á láni. Stefán fer út á sunnudag en segir að Patro Eisden hefði viljað fá sig enn fyrr.
„Ég er að mæta aðeins seinna en aðrir leikmenn, það var aldrei möguleiki að klára tímabilið eða eitthvað þannig. Þetta er eitthvað sem ég hef stefnt að og þetta kemur aðeins fyrr en ég hafði ætlað mér. Það er draumur allra að fara út og spila."
„Það eru nýir eigendur, liðið er að koma upp í næst efstu deild. Þeir ætla sér að endurbyggja félagið og það er spennandi og áhugaverð vegferð. Ég get líka bætt mig þarna, þeir eru búnir að ráða sóknarmannaþjálfara sem á einhverja 50 landsleiki fyrir Belgíu. Ég ætla að halda áfram að bæta mig í fótbolta og taka næsta skref. Þetta er sterk deild og líkamleg. Ég mun þurfa að bæta á mig vöðvum."
Umræddur sóknarmannaþjálfari heitir Luc Nilis og lék 56 landsleiki fyrir Belgíu. Hann er 56 ára spilaði lengst af með Anderlecht og PSV Eindhoven en á einnig nokkra leiki með Aston Villa.
Hægt er að sjá viðtalið við Stefán í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar er hann meðal annars spurður að því hvort hann telji að Blikar nái að fylla í hans skarð.