Fotbolti.net
30.07.18 - 22:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Óli Stefán: Stutt í að við getum kallað okkur stórlið

Auglýsing
Óli Stefán Flóventsson.

Óli Stefán Flóventsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur, var mjög svekktur eftir tap gegn KR í Pepsi-deildinni í kvöld. Vörn Grindavíkur hélt fram á 82. mínútu en þá skoraði Óskar Örn Hauksson úr aukaspyrnu. Stuttu síðar innsiglaði Björgvin Stefánsson sigur KR-inga.
„Það er ofboðslega súrt að svona einföld atriði eins og að hleypa boltanum í gegnum vegg kosti okkur. Við vorum búnir að fara yfir þetta, Óskar er góður skotmaður og skoraði nákvæmlega eins mark í síðasta leik,\" sagði Óli Stefán um fyrsta mark KR.

„Það myndast glufa og boltinn fer í gegn, þetta gerist en ótrúlega óheppilegt á þessum tíma.\"

Óli segir að það sé stutt í að Grindavík geti kallað sig stórlið.

„Við vildum koma hingað og sækja þrjú stig. Við komum hingað hugrakkir og graðir og ætlum að sækja þrjú stig. Það vantar lítið upp á það að við getum farið að kalla okkur stórlið, að koma hingað og stýra leik og gera þessa hluti á faglegan hátt. Við fengum tækifæri til þess í dag en nýttum þau ekki.\"

„Við vorum taktlausir og með vitlausar ákvarðanir á sóknarhelmingi okkar. Við fórum alltof fljótt í það að reyna erfiðar úrslitasendingar. Jafnvægið í liðinu var ekki nægilega gott á milli varnar og sóknar.\"

„Þeir voru samt ekki að fá mörg dauðafæri og við stöndum það. Það er ótrúlega svekkjandi að fá á okkur mark svona.\"

Mun Grindavík styrkja sig áður en félagaskiptaglugginn lokar?

„Ég vildi óska að ég væri í þeirri stöðu að fá menn sem passa í okkar lið, en það er hreinlega ekki í boði. Við erum með fínan hóp og treystum á þessa stráka.\"

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Óli Stefán: Stutt í að við getum kallað okkur stórlið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.