Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 30. júlí 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Aston Villa með háan verðmiða á Grealish
Mynd: Getty Images
Útlit er fyrir að Jack Grealish, fyrirliði Aston Villa, verði áfram hjá félaginu á næsta tímabili.

Grealish hjálpaði Aston Villa að bjarga sér frá falli í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.

Aston Villa vill ekki selja Grealish fyrir minna en 80 milljónir punda að sögn Sky Sports. Nokkur félög gætu verið tilbúin að borga 50-60 milljónir punda fyrir Grealish en Villa vill fá talsvert meira.

Manchester United hefur ákveðið að einbeita sér að Jadon Sancho en félagið hafði áður sýnt Grealish áuga.

Arsenal hefur sýnt Grealish áhuga en félagið er ekki með mikið fé til leikmannakaupa vegna kórónaveirunnar og því er ólíklegt að hann fari þangað.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner