Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 30. júlí 2021 21:33
Victor Pálsson
Ítrekar pirring í garð Arsenal - „Getum ekki beðið endalaust"
Mynd: EPA
Steve Bruce, stjóri Newcastle, hefur ítrekað pirring félagsins sem vill fá Joe Willock í sínar raðir frá Arsenal í sumar.

Willock var lánaður til Newcastle seinni hluta síðasta tímabils og stóð sig virkilega vel á St. James' Park.

Newcastle hefur reynt og reynt að fá Willock aftur til félagsins í sumar en það hefur ekki gengið hingað til.

Bruce var í viðtali í síðustu viku þar sem hann heimtaði svar frá Arsenal og gerir það nú á ný.

„Ég hef sagt þetta margoft, hann er leikmaður Arsenal. Joe þarf að taka ákvörðun," sagði Bruce.

„Það hlýtur að koma að niðurstöðu, við getum ekki beðið endalaust. Við erum með einn eða tvo aðra möguleika og það væri rangt ef við skoðum þá ekki."
Athugasemdir
banner
banner