Fotbolti.net
30.07.21 - 20:33
Victor Pálsson

Ramos sendi kveðju á Varane

Ramos sendi kveðju á Varane
Canon

Mynd: EPA

Sergio Ramos, leikmaður Paris Saint-Germain, skrifaði kveðju til vinar síns Raphael Varane á Instagram í gær.
Varane er að ganga í raðir Manchester United frá Real Madrid og kveður því það spænska líkt og Ramos gerði í sumar.

Ramos varð samningslaus eftir leiktíðina og gekk frítt í raðir PSG en Varane kostar Man Utd um 34 milljónir punda.

Þeir félagar léku í mörg ár saman með Real en gætu nú mæst í Evrópuboltanum í framtíðinni.

„Kæri Rapha. Ég get aðeins þakkað þér fyrir þessi ár af vinskap, félagsskap og sigrum," skrifaði Ramos.

„Ef við mætum hvor öðrum, þú heldur með liðinu frá heimalandinu, ekki rétt?"

„Ég óska þér alls hins besta í þessu nýja verkefni og ég er viss um að það verði spennandi. Hafðu það gott."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.