Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 30. júlí 2022 19:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Championship: Jafnt í síðdegisleiknum
John Swift í búningi Reading
John Swift í búningi Reading
Mynd: Getty Images

Middlesbrough 1 - 1 West Brom
1-0 Isaiah Jones ('10 )
1-1 John Swift ('51 )


Middlesbrough sem hafnaði í 7. sæti í Championship deildinni á síðustu leiktíð tók á móti WBA sem hafnaði í því tíunda aðeins þremur stigum á eftir Boro í síðdegisleik Championship deildarinnar í dag.

Isaiah Jones skoraði eitt mark á síðustu leiktíð fyrir Boro en hann kom liðinu yfir strax á 10. mínútu, fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleiknum.

Snemma í síðari hálfleik skoraði John Swift fyrir WBA og jafnaði þar með metin en hann var að leika sinn fyrsta leik fyrir félagið.

Hann hafði spilað með Reading frá árinu 2016 en samningur hans við félagið rann út í sumar og hann gerði þriggja ára samning við WBA.t


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner