Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 30. nóvember 2019 12:00
Ívan Guðjón Baldursson
Þórir Jóhann semur við FH
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Þórir Jóhann Helgason er búinn að skrifa undir nýjan samning við FH sem gildir út tímabilið 2021.

Þórir Jóhann er aðeins 19 ára gamall og sló í gegn í sumar þar sem hann fékk að taka þátt í 16 af 22 deildarleikjum FH.

Hann er uppalinn hjá Haukum en skipti yfir til FH eftir eitt tímabil með meistaraflokki Hauka. Þá var hann 17 ára gamall og spilaði 9 leiki í Inkasso-deildinni.

Þórir er mikið efni og á 12 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands. Hann er partur af gagnagrunni tölvuleiksins Football Manager þar sem hann fær 100-130 hæfileikastig, af 200 mögulegum.


Athugasemdir
banner
banner