Fotbolti.net
30.11.25 - 13:25
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið dagsins: Salah bekkjaður

Byrjunarlið dagsins: Salah bekkjaður
Canon

Mynd: Liverpool

Englandsmeistarar Liverpool heimsækja West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í dag og hafa byrjunarliðin verið staðfest.
Það er ýmislegt sem kemur á óvart þar sem Mohamed Salah er ekki í byrjunarliðinu. Arne Slot þjálfari þurfti að taka stóra ákvörðun eftir hrikalegt gengi síðustu vikna og ákvað að gefa nýju mönnunum Florian Wirtz og Alexander Isak frekar tækifæri.

Slot hefur þá ákveðið að færa Dominik Szoboszlai aftur upp á miðjuna og fær Joe Gomez tækifærið í hægri bakvarðarstöðunni. Milos Kerkez heldur sínu sæti í vinstri bakverði.

Í heildina gerir Slot fjórar breytingar frá 1-4 tapi gegn PSV Eindhoven í miðri viku. Alisson kemur aftur í markið auk þess sem Gomez, Wirtz og Isak koma inn í byrjunarliðið.

Nuno Espírito Santo gerir þrjár breytingar á liði West Ham eftir 2-2 jafntefli gegn Bournemouth um síðustu helgi. Kostas Mavropanos, Soungoutou Magassa og Lucas Paquetá koma inn í byrjunarliðið fyrir Max Kilman, Igor Julio og Luis Guilherme sem setjast á bekkinn.

Það hefjast tveir aðrir leikir á sama tíma þegar Nottingham Forest og Aston Villa eiga heimaleiki gegn Brighton og Wolves.

Liverpool: Alisson, Gomez, Van Dijk, Konate, Kerkez, Mac Allister, Gravenberch, Szoboszlai, Wirtz, Isak, Gakpo
Varamenn: Mamardashvili, Endo, Salah, Chiesa, Jones, Ekitike, Robertson, Nyoni, Ngumoha

West Ham: Areola, Wan-Bissaka, Mavropanos, Todibo, Diouf, Magassa, Potts, Fernandes, Paqueta, Bowen, Wilson
Varamenn: Hermansen, Walker-Peters, Kilman, Igor, Fullkrug, Guilherme, Rodriguez, Soucek, Irving



Nottingham Forest: Sels; Savona, Milenkovic, Morato, Williams; Sangare, Anderson; Ndoye, Gibbs-White, Dominguez; Jesus.
Varamenn: Victor, Hudson-Odoi, Kalimuendo, Hutchinson, Yates, Cunha, McAtee, Boly, Abbott.

Brighton: Verbruggen; De Cuyper, Van Hecke, Dunk, Kadioglu; Wieffer, Ayari; Minteh, Rutter, Gomez; Welbeck.
Varamenn: Steele, Boscagli, Coppola, Veltman, Hinshelwood, Baleba, Kostoulas, Gruda, Tzimas.



Aston Villa: Martinez, Cash, Konsa, Torres, Digne, Tielemans, Kamara, McGinn, Rogers, Buendia, Malen
Varamenn: Bizot, Lindelöf, Maatsen, Bogarde, Barkley, Onana, Guessand, Watkins, Sancho

Wolves: Johnstone, Tchatchoua, Agbadou, Mosquera, Toti, Wolfe, Andre, J.Gomes, Bellegarde, Arias, Larsen
Varamenn: Sa, H.Bueno, S.Bueno, Munetsi, Hwang, Arokodare, Chirewa, Hoever, Mane
Byrjunarlið dagsins: Salah bekkjaður
Canon

Mynd: Aston Villa

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.