Fotbolti.net
31.01.23 - 18:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Benfica vill fá peningana hraðar frá Chelsea

Benfica vill fá peningana hraðar frá Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Samkævmt heimildum Sky Sports er Enzo Fernandez búinn í læknisskoðun hjá Chelsea.

Það eru hins vegar viðræður enn í fullum gangi milli Benfica og Chelsea þar sem félögin eiga í miklum erfiðleikum með að komast að samkomulagi um hvernig á að borga fyrir leikmanninn.

Chelsea er talið tilbúið að borga riftunarákvæðið í samningnum hans sem nemur 105 milljónum punda í sex hlutum á næstu fimm árum.

Kaveh Solhekol hjá Sky Sports segir hins vegar að Benfica vilji að enska félagið borgi 105 milljónir í þremur hlutum á tveimur árum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.