Sky Sports segir það alveg ljóst að Bernardo Silva fari ekki frá Manchester City í dag.
Einhverjar sögusagnir hafa verið í gangi um að Bernardo gæti fylgt Joao Cancelo frá City í dag en Sky segir það ekki gerast.
Einhverjar sögusagnir hafa verið í gangi um að Bernardo gæti fylgt Joao Cancelo frá City í dag en Sky segir það ekki gerast.
Portúgalski landsliðsmaðurinn verður áfram hjá City þegar glugganum verður skellt í lás klukkan 23:00.
Bernardo hefur lengi verið orðaður við Barcelona og mikið talað um að leikmaðurinn eigi sér þá ósk að fara til félagsins.
Cancelo mun í dag ganga frá skiptum sínum til Bayern München en bakvörðurinn lenti upp á kant við Pep Guardiola.
Athugasemdir