Fotbolti.net
31.01.25 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Man Utd sagt búið að tryggja sér Quenda

Geovany Quenda.

Geovany Quenda.

Canon

Mynd: Getty Images

A Bola í Portúgal skrifar um það í dag að Manchester United sé búið að ganga frá kaupum á kantmanninum efnilega Geovany Quenda frá Sporting í Lissabon.

Hann muni hins vegar ekki ganga í raðir félagsins núna, heldur næsta sumar.
Kaupverðið kemur til með að vera í kringum 60 milljónir evra.

Quenda er 17 ára gamall kantmaður sem fékk tækifærið undir stjórn Ruben Amorim á þessari leiktíð. Amorim tók svo við Man Utd og hann ætlar að taka leikmanninn með sér.

Hann er talinn einn efnilegasti leikmaður Portúgals um þessar mundir og hefur verið valinn í A-landsliðið þrátt fyrir ungan aldur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.