„Ég er spenntur fyrir félaginu og tækifærinu, að vera hérna og að komast af stað," segir Markus Nakkim, nýr varnarmaður Vals, við Fótbolta.net í dag.
Markus er fæddur árið 1996 og á yfir 100 leiki í efstu deild í Noregi. Síðast lék hann í Bandaríkjunum með Orange County SC, sem er í Kalíforníu.
Markus er fæddur árið 1996 og á yfir 100 leiki í efstu deild í Noregi. Síðast lék hann í Bandaríkjunum með Orange County SC, sem er í Kalíforníu.
„Skyndilega kom upp tækifæri í gegnum umboðsmann minn. Valur vildi ræða við mig og ég tilfinningin mín var mjög góð eftir að ég ræddi við félagið, Arnór Smárson og Túfa. Ég hef verið í burtu frá evrópskum fótbolta í tvö ár og ég bjóst ekki endilega við því að koma til Íslands, en því meira sem ég hugsaði um tækifærið og eftir að ég ræddi við félagið þá varð tilfinningin betri. Ég fylgdi innsæinu mínu," segir Markus.
Markus skrifaði undir tveggja ára samning við Val. Hann segir það stórt fyrir sjálfan sig að vera hluti af félagi sem er með mikinn metnað.
„Ég vil vera hluti af hóp sem ætlar sér stóra hluti. Að koma hingað og að upplifa öðruvísi fótbolta, menningu og tungumál en á sama tíma vera hluti af sögufrægu félagi er eitthvað sem tikkar í mörg box fyrir mig. Ofan á það fékk ég mjög góða tilfinningu að tala við fólkið í kringum félagið."
Erfitt á góðan hátt
Markus kom til Íslands fyrir nokkrum dögum og hefur fengið að kynnast áhugaverðu veðurfari hér á landi. Í samtali við fréttamann sagði hann það kannski aðeins harðara en heima í Noregi. Hann hefur verið að æfa á fullu síðustu daga og ætlar að mæta af krafti inn í tímabilið.
„Þetta hefur verið erfitt á góðan hátt," segir Markus er hann er spurður út í það hvernig hefur gengið að aðlagast hérna fyrstu dagana.
„Við höfum æft af krafti og ég hef verið hrifinn af því hversu mikið fagfólk leikmennirnir og starfsfólkið er. Það er mikið af reyndum leikmönnum í liðinu með mikil gæði og þeir vita hvernig það er að spila á háu stigi í Evrópu. Þeir eru að setja 'standard' á æfingum og með því hvernig þeir hugsa um sjálfa sig."
„Núna snýst þetta um að leggja mikið á mig og eftir æfingar reyni ég að njóta veðursins," sagði Norðmaðurinn léttur.
Þekkir Hólmar úr norska boltanum
Líklegt er að Markus muni spila við hlið Hólmars Arnars Eyjólfssonar í hjarta varnarinnar hjá Val. Hann þekkir hann vel úr norska boltanum en Hólmar spilaði áður fyrir Rosenborg.
„Mér finnst mikils til hans koma. Við höfum verið að hlaupa mikið saman þar sem hann er að koma til baka úr meiðslum og ég er ekki enn kominn með leikheimild," segir Markus.
„Hann er hungraður og setur 'standardinn' á æfingum á hverjum degi. Hann er með mikla nærveru í búningsklefanum og utan hans líka. Ég man eftir honum úr Rosenborg og ég man eftir að hafa spilað gegn honum. Hann er með mikil gæði og ég er spenntur að spila fyrir honum."
„Það eru margir góðir leikmenn í liðinu og ég hlakka til að kynnast þeim betur," segir Markus.
Frá Kalíforníu til Reykjavíkur
Eins og áður segir þá hefur Markus spilað síðustu ár í Kalíforníu. Hvernig var að taka skrefið þangað?
„Ég vildi spila erlendis. Það voru hlutir sem gerðust á árunum áður. Á endanum var þetta góður möguleiki og skemmtilegt ævintýri. Þetta var mjög frábrugðið því að spila í Noregi og lífsgæðin voru ótrúleg," segir hann.
„Þetta var mjög metnaðarfullt lið og margir góðir leikmenn, tæknilega og líkamlega. Ég lærði mikið af þessari reynslu."
„Eftir að hafa verið þarna í tvö ár, þá fannst mér tími kominn á að snúa aftur til Evrópu. Að koma til Íslands var mjög svalt tækifæri," segir Markus en það er óhætt að fullyrða að það verði mikill munur á því að búa í Reykjavík og Kalíforníu.
„Fólk var kannski hissa á þessum skiptum. Það var erfitt að fara en mér finnst þetta líka sýna hvað fótbolti og ferilinn minn skiptir mig miklu máli. Ég er spenntur að búa á Íslandi og sjá náttúrufegurðina. Ég tel það rétta skrefið fyrir mig að koma til Íslands, deildin er góð og hópurinn er frábær. Þetta er besta ákvörðunin fyrir mig þó ég muni auðvitað sakna Kalíforníu á dögum sem þessum."
Eitthvað sem ég stefni að líka
Valur hafnaði í þriðja sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili en Markus kemur inn í liðið og ætlar að hjálpa því að taka næstu skref.
„Metnaðurinn minn er mikill. Það er ástæðan fyrir því að ég kom. Því er ekki að neita að metnaður félagsins og metnaður minn er mikill," segir Markus.
„En það er líka mikilvægt að vera auðmjúkur. Ég veit að það eru mörg mjög góð lið í deildinni. Ég horfði á leikinn gegn KR í gær og þeir virðast vera mjög góðir til dæmis. Það eru mörg góð lið. Ég hef talað við kunningja mína héðan til þess að fá betri sýn á hlutina. Þetta er öðruvísi deild og öðruvísi fótbolti sem ég þarf að aðlagast en ég hefði ekki komið hingað án þess að telja það að ég hafi eitthvað fram að bjóða."
„Þetta er lið sem vill vera í Evrópukeppni og berjast um titla. Það er líka það sem ég stefni að," sagði norski varnarmaðurinn að lokum.
Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Athugasemdir