ÍR tók á móti Vestra í 7. umferð Lengjudeildar karla í dag. Fótbolti.net ræddi við Badu, þjálfara Vestra eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍR 0 - 1 Vestri
„Ég var mjög ánægður með liðið í dag og andann sem það sýndi hér í dag. Við vildum sterka frammistöðu varnarlega eftir að hafa verið að gefa ódýr mörk í undanförnum leikjum. Fyrir leik sagði ég að við ætluðum að halda lakinu hreinu og við náðum því svo ég er sáttur.''
Frammistaðan var heilt yfir mun betri hjá liði Vestra hér í dag. Hvernig metur Badu þessa frammistöðu miðað við undanfarna leiki?
„Margir hlutir hafa verið að fara á móti okkur í seinustu leikjum og við vorum ekki að bregðast rétt við en í dag sýndu strákarnir sitt rétta andlit. Ég hef aldrei efast um karakterinn og hugarfar minna leikmanna. Ég sé lið sem getur barist réttum megin í töflunni og þetta snýst bara um að halda áfram að vinna að því.''























