Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var niðurlútur eftir 6-1 afhroðið gegn ÍBV í Bestu deild karla í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 6 - 1 Keflavík
Keflvíkingar mættu ekki til leiks og virtist vanta hug í þá í fyrri hálfleiknum. Þeir reyndu að stilla saman strengi í hálfleik, en Eyjamenn náðu að gera út um leikinn með tveimur mörkum með stuttu millibili.
„Nei það er rétt hjá þér. Þetta var ekki góð ferð til Eyja og úr karakter. Við erum hálf litlir í okkur í fyrri hálfleik, missum boltann trekk í trekk á miðjunni. Við litum alls ekki vel út, en ákváðum að fara aðeins yfir málin í hálfleik og ætluðum að koma með meiri orku út en það gekk ekki betur en það að við vorum búnir að fá á okkur 3-0 í andlitið eftir þrjár mínútur í seinni hálfleik og þannig hélt það áfram. Því miður ekki góður dagur hjá okkur en bara áfram gekk. Nú kemur smá frí og við þurfum að endurskoða okkur aðeins en langt í næsta leik og þurfum að hugsa okkar gang,“ sagði Haraldur við Fótbolta.net.
Keflavík átti fyrstu skottilraunin á 51. mínútu leiksins. Þeir minnkuðu muninn í 4-1 en það var heldur seint. Hann segir að þeir muni nýta pásuna til að fara yfir málin.
„Fyrsta skotið okkar kemur á 51. mínútu en leikurinn klárast í 4-0 og við fáum eitt en það er of seint. Við þurfum að læra af þessu.“
„Ég held að það sé ágætt að fá smá frí og langt í næsta leik. Við getum farið yfir málin, grandskoðað þennan leik og séð hvað við getum gert betur,“ sagði Haraldur í lokin.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 10 | 9 | 1 | 0 | 34 - 6 | +28 | 28 |
| 2. KR | 10 | 8 | 1 | 1 | 38 - 23 | +15 | 25 |
| 3. Fram | 9 | 6 | 2 | 1 | 25 - 16 | +9 | 20 |
| 4. Breiðablik | 9 | 4 | 3 | 2 | 22 - 15 | +7 | 15 |
| 5. Valur | 10 | 5 | 0 | 5 | 19 - 22 | -3 | 15 |
| 6. ÍA | 9 | 3 | 3 | 3 | 12 - 16 | -4 | 12 |
| 7. Keflavík | 9 | 3 | 2 | 4 | 12 - 18 | -6 | 11 |
| 8. KA | 9 | 3 | 1 | 5 | 12 - 15 | -3 | 10 |
| 9. Stjarnan | 10 | 3 | 1 | 6 | 18 - 22 | -4 | 10 |
| 10. Þór | 9 | 2 | 0 | 7 | 7 - 23 | -16 | 6 |
| 11. ÍBV | 9 | 1 | 2 | 6 | 14 - 23 | -9 | 5 |
| 12. FH | 9 | 0 | 2 | 7 | 12 - 26 | -14 | 2 |























