Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 31. maí 2026 17:27
Brynjar Ingi Erluson
Palhinha verður ekki áfram hjá Tottenham - Sporting leiðir baráttuna
Mynd: EPA
Portúgalski miðjumaðurinn Joao Palhinha verður ekki áfram í herbúðum Tottenham, en þetta skrifar portúgalski blaðamaðurinn Hugo Forte á ABola.

Palhinha var á láni hjá Tottenham frá Bayern München og einn af bestu leikmönnum liðsins á annars vonbrigðatímabili.

Hann var gríðarlega mikilvægur í fallbaráttunni og hjálpaði liðinu að halda sér uppi.

Tottenham var með kaupákvæði í samningnum sem rennur út á morgun, en samkvæmt Forte verður það ekki nýtt þar sem Palhinha hefur engan áhuga á að vera áfram í Lundúnum.

Palhinha, sem er þrítugur, er að öllum líkindum á leið aftur heim til Lissabon. Hans gamla félag Sporting er sagt leiða baráttuna um leikmanninn.

Portúgalinn á tvö ár eftir af samningi sínum við Bayern en er ekki í myndinni hjá Vincent Kompany, þjálfara liðsins.
Slapp
banner
banner