Aron Jó: Við vitum að þetta er aðeins extra - þetta er stærsta derby á landinu

Aron Jóhannsson leikmaður Vals

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Aron Jóhannsson leikmaður Vals

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Valur heimsóttu nágranna sína í KR á Meistaravöllum í kvöld þegar 17.umferð Bestu deildar karla hélt áfram göngu sinni.
Valur freistaði þess að vinna til þess að helda pressu í toppbaráttunni og fór svo að Valsmenn unnu nokkuð þægilegan sigur í kvöld.
„Við vitum alveg að KR er hörku lið og það eru ekki mörg lið sem munu mæta á þennan völl og vinna 4-0 og við erum bara virkilega stoltir af þessari frammistöðu." Sagði Aron Jóhannsson leikmaður Vals eftir leikinn í kvöld.
„Þegar við spilum góðan fótbolta þá sköpum við mikið af færum og við erum með gæða menn í öllum stöðum og marga gæða menn á bekknum í dag þannig að við erum bara með mikið af gæðum í okkar liði og þegar við klikkum saman og erum að ná að spila vel saman að þá vitum við alveg að við höfum mörk í okkur og það er bara það sem skildi á milli í dag að við erum með þessi gæði í okkar liði til að klára þessi færi og við erum búnir að vera í undanförnum leikjum að skapa mikið af færum en ekki skora mikið en þetta small allt saman í dag."
Valsmenn virðast vera með hörku tak á KR í sumar en liðin hafa mæst tvisvar sinnum í deildinni og Valur unnið báða leikina með 9-0 samanlagt.
„Við vitum alltaf að þetta er aðeins extra - þetta er stærsta derby á landinu og við vitum að þetta gefur okkar aðdáendum aðeins meira og það er gaman að spila þessa leiki og erum bara búnir að vera heppnir með það að spila tvo frábæra leiki á móti þeim."
Nánar er rætt við Aron Jóhannsson leikmann Vals í spilaranum hér fyrir ofan.





