Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 31. ágúst 2021 21:22
Victor Pálsson
Tottenham riftir líklega samningnum við Aurier
Mynd: Getty Images
Tottenham er í viðræðum við Serge Aurier um að rifta samningi bakvarðarins. Það er sameiginleg ákvörðun beggja aðila.

Sky Sports greinir frá þessu í kvöld en Aurier hefur undanfarin fjögur ár spilað með enska liðinu.

Ef samningi Aurier verður rift þá má hann semja við annað félag þó að glugginn muni loka í kvöld.

Aurier er ekki inni í myndinni hjá Nuno Santo, stjóra Tottenham, og mun takmarkað spila í vetur ef hann verður áfram.

Aurier er 28 ára gamall en hann kom til Tottenham frá PSG árið 2017 og lék 77 deildarleiki.

Athugasemdir
banner
banner