Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 31. október 2020 16:13
Ívan Guðjón Baldursson
Jökull hélt hreinu - Excelsior gerði jafntefli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jökull Andrésson hélt hreinu í sínum öðrum byrjunarliðsleik með Exeter City í ensku D-deildinni.

Jökull er ekki nema 19 ára gamall og leikur fyrir Exeter að láni frá Reading.

Á heimasíðu Exeter er Jökli hrósað fyrir frammistöðu sína.

Exeter lagði Carlisle að velli í dag 1-0 og er með 19 stig eftir 10 umferðir.

Exeter 1 - 0 Carlisle
1-0 T. Parkes ('48)
Rautt spjald: G. Toure, Carlisle ('60)

Elías Már Ómarsson lék þá allan leikinn en tókst ekki að skora er Excelsior gerði markalaust jafntefli við Go Ahead Eagles í hollensku B-deildinni.

Elías Már hefur verið funheitur á tímabilinu og er kominn með 12 mörk í 11 leikjum. Í dag tókst honum þó ekki að skora.

Þrátt fyrir mikla markaskorun Elíasar er Excelsior aðeins með 14 stig eftir 10 umferðir af deildartímabilinu.

G.A. Eagles 0 - 0 Excelsior

Ögmundur Kristinsson var að lokum ónotaður varamaður í 2-0 sigri Olympiakos gegn Smyrnis í efstu deild gríska boltans.

Olympiakos er á toppi deildarinnar með 13 stig eftir 5 umferðir og markatöluna 12-1. Því er ansi erfitt fyrir Ögmund að vinna sér inn sæti í byrjunarliðinu um þessar mundir.

Olympiakos 2 - 0 Smyrnis
1-0 Koka ('65)
2-0 Koka ('72)
Athugasemdir
banner