Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mán 14. apríl 2014 13:00
Magnús Már Einarsson
Sleit hásin við að fagna marki
Mynd: Getty Images
Beppe Zinetti, markmannsþjálfari Torino í Serie A, hefur lokið störfum á þessu tímabili.

Torino skoraði sigurmark undir lokin gegn Genoa í gær og Zinetti missti sig í fagnaðarlátum.

Zinetti sleit hásin og þarf að fara í aðgerð af þeim sökum sem þýðir að hann mun ekki starfa meira á tímabilinu.

,,Það var smá sorg í búningsklefa Torino eftir leikinn þrátt fyrir magnaðan sigur á Genoa," sagði í yfirlýsingu frá Torino eftir leikinn.
Athugasemdir
banner
banner