Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   fös 15. ágúst 2014 18:00
Magnús Már Einarsson
Carlos Sanchez til Aston Villa (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur keypt miðjumanninn Carlos Sanchez frá spænska félaginu Elche.

Talið er að kaupverðið hljóði upp á 4,7 milljónir punda.

Hinn 28 ára gamli Sanchez skrifaði undir fjögurra ára samning við Villa.

Sanchez kom við sögu í fjórum leikjum með Kolumbíu á HM í Brasilíu í sumar.

Aston Villa mætir Stoke í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner