Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   fös 16. febrúar 2018 21:36
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Quaison hetja kvöldsins
Mynd: Getty Images
Hertha Berlin 0 - 2 Mainz
0-1 Robin Quaison ('40)
0-2 Robin Quaison ('65)

Robin Quaison er hetja Mainz um þessar mundir eftir að hafa tryggt liðinu gríðarlega mikilvægan sigur.

Mainz kíkti til Berlínar og þurfti að snúa heim með þrjú stig í fallbaráttunni.

Heimamenn í Hertha Berlin héldu boltanum vel innan liðsins en fundu engar glufur á vörn gestanna, sem voru lítið með boltann en gífurlega hættulegir í hvert skipti sem þeir náðu honum.

Quaison gerði bæði mörk leiksins. Fyrra markið var frábært einstaklingsframtak, þar sem hann fór framhjá tveimur andstæðingum áður en hann lét vaða frá vítateigsboganum.

Í seinna markinu slapp Quaison innfyrir vörnina eftir háa stungusendingu frá Jean-Philippe Gbamin.

Mainz er í umspilssæti um að falla niður um deild, sex stigum fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner