Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25097 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR31.08.2025, 13:07

Emmanuel Dennis riftir við Forest (Staðfest)

Nígeríski sóknarmaðurinn Emmanuel Dennis hefur fengið samningi sínum rift hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Nottingham Forest, en þetta kemur fram í tilkynningu frá Forest í dag.

FRÉTTIR31.08.2025, 10:11

Andri Lucas til Blackburn (Staðfest)

Andri Lucas Guðjohnsen er genginn í raðir Blackburn Rovers frá belgíska félaginu Gent fyrir um það bil tvær milljónir evra en þetta kemur fram í tilkynningu frá enska félaginu í dag. Samningurinn er til þriggja ára.

FRÉTTIR30.08.2025, 14:28

Andreas Pereira til Palmeiras (Staðfest)

Fulham er búið að selja brasilíska miðjumanninn Andreas Pereira til Palmeiras í Brasilíu en hann átti aðeins eitt ár eftir af samningi við enska úrvalsdeildarfélagið.

FRÉTTIR30.08.2025, 10:46

Nkunku til Milan (Staðfest)

Christopher Nkunku er genginn til liðs við AC Milan frá Chelsea. Milan borgar um 36 milljónir punda fyrir hann. Hann skrifar undir fimm ára samning við ítalska félagið. Chelsea hefur selt leikmenn fyrir um það bil 314 milljónir punda í sumar.

FRÉTTIR30.08.2025, 06:00

Fabio Silva frá Wolves til Dortmund (Staðfest)

Portúgalski framherjinn Fabio Silva er genginn til liðs við Dortmund frá Wolves. Kaupverðið er tæplega 23 milljónir punda. Hann skrifar undir fimm ára samning við þýska félagið.

FRÉTTIR29.08.2025, 20:45

Magassa til West Ham (Staðfest) - „Ekki erfitt að segja já"

Soungoutou Magassa er genginn til liðs við West Ham frá Mónakó. Kaupverðið er rúmlelga 17 milljónir punda. Magassa er varnarsinnaður miðjumaður en hann getur einnig leyst stöðu miðvarðar. Hann er 21 árs gamall og er landsliðsmaður U21 landsliðs Frakklands. <i>„West Ham er mjög stórt félag með langa sögu á Englandi, með marga aðdáendur og mjög stóran leikvang. Það var ekki erfitt að segja já,"</i> sagði Magassa.

FRÉTTIR29.08.2025, 16:19

Xavi Simons í Tottenham (Staðfest)

Tottenham hefur staðfest að hollenski landsliðsmaðurinn Xavi Simons sé genginn í raðir félagsins. Hann kemur frá RB Leipzig í Þýskalandi og kostar 60 milljónir evra. Sú upphæð gæti síðar meira hækkað í 70 milljónir evra.

FRÉTTIR29.08.2025, 15:00

Liverpool lánar ungan miðjumann til Ajax (Staðfest)

Ajax hefur staðfest að félagið hafi fengið miðjumanninn James McConnell á láni frá Liverpool. Á sama tíma og það var tilkynnt, þá sagði Liverpool frá því að leikmaðurinn hefði skrifað undir nýjan samning sem gildir til ársins 2030.

FRÉTTIR29.08.2025, 13:14

Spænskur landsliðsmaður í Crystal Palace (Staðfest)

Crystal Palace hefur staðfest kaup á Yeremy Pino en hann kemur til félagsins frá Villarreal. Palace borgar 21 milljón punda fyrir Pino og gæti sú upphæð hækkað í 26 milljónir punda síðar meir.

FRÉTTIR29.08.2025, 10:19

Sandra María seld til Köln (Staðfest)

Landsliðskonan Sandra María Jessen hefur gengið í raðir þýska úrvalsdeildarfélagsins Köln frá Þór/KA. <i>„Sandra María hefur því spilað sinn síðasta leik fyrir Þór/KA í bili og færir félagið henni hér með bestu þakkir fyrir ómetanlegt framlag til liðsins, félagsins og knattspyrnunnar á Akureyri,"</I> segir í tilkynningu Þórs/KA.

FRÉTTIR29.08.2025, 09:54

Fram fékk markvörð með undanþágu frá FIFA (Staðfest)

Fram hefur samið við markvörðinn Ashley Brown Orkus. Hún kemur til félagsins á undanþágu þar sem báðir markverðir liðsins eru núna meiddir. Elaina LaMacchia, sem hafði verið einn besti markvörður Bestu deildarinnar, meiddist illa fyrr í mánuðinum í leik gegn FHL. Meiðsli hennar eru mjög alvarleg og hún verður lengi frá.

FRÉTTIR29.08.2025, 08:35

Mateus Fernandes til West Ham (Staðfest)

West Ham United hefur staðfest kaup á portúgalska miðjumanninum Mateus Fernandes sem er keyptur á um 40 milljónir punda frá Southampton. Hann er þriðji dýrasti leikmaður í sögu félagsins, á eftir Sebastien Haller (45 milljónir punda) og Lucas Paqueta (51).

FRÉTTIR29.08.2025, 07:55

Mourinho rekinn frá Fenerbahce (Staðfest)

Tyrkneska félagið Fenerbahce hefur tilkynnt að það sé búið að reka Jose Mourinho. <i>„Við þökkum honum fyrir hans starf fyrir félagið og óskum honum velgengni í næstu verkefnum,"</i> segir í yfirlýsingu Fenerbahce. Samkvæmt tyrkneskum fjölmiðlum hefur samband Mourinho við stjórn Fenerbahce verið eldfimt í allt sumar og hann gagnrýnt stefnu félagsins.

FRÉTTIR28.08.2025, 22:53

Solskjær rekinn eftir tap gegn Lausanne (Staðfest)

Ole Gunnar Solskjær hefur verið rekinn frá tyrkneska stórveldinu Besiktas eftir rúmlega hálft ár í starfi. Hann tók við Besiktas í janúar og náði flottum árangri með liðið í tyrknesku deildinni.

FRÉTTIR28.08.2025, 11:00

Krejcí orðinn úlfur (Staðfest) - Fyrsti Tékkinn í sögu félagsins

Varnarmaðurinn Ladislav Krejcí er genginn í raðir Wolves frá Girona. Þessi 26 ára miðvörður, sem getur einnig leikið á miðjunni, kemur á lánssamningi en samningur til 2030 verður varanlegur þegar ákveðin skilyrði verða uppfyllt. Krejcí er tékkneskur landsliðsmaður og er fyrsti tékkneski leikmaðurinn í sögu Wolves. Hann lék eitt tímabil með Girona og spilaði 25 leiki í öllum keppnum þegar liðið hafnaði í sextánda sæti í La Liga. Þar áður var hann fimm ár hjá Spörtu í Prag þar sem hann vann tvo deildarmeistaratitla. <i>„Ég er virkilega spenntur. Enska úrvalsdeildin er besta deild heims. Þetta er mikið afrek fyrir mig. Mín fyrstu kynni af félaginu hafa verið stórkostleg,"</I> segir Krejcí. Úlfarnir hafa fyrr í sumar fengið baverðina Jackson Tchatchoua og David Möller Wolfe ásamt sóknarleikmönnunum Fer Lopez og Jhon Arias. Úlfarnir hafa tapað báðum leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni án þess að skora mark.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.