FRÉTTIR03.12.2024, 12:16
ÍBV tilkynnti rétt í þessu að sænski miðvörðurinn Mattias Edeland væri genginn í raðir félagsins. Edeland skrifar undir tveggja ára samning við ÍBV.
Hann er 25 ára gamall og kemur til ÍBV frá sænska félaginu IFK Stocksund sem leikur í þriðju efstu deild Svíþjóðar.
FRÉTTIR03.12.2024, 11:53
Aron Kristófer Lárusson er búinn að rifta samningi sínum við Þór og mun því ekki leika áfram með Þórsurum á næsta ári.
Aron var keyptur til Þórsara frá KR í sumarglugganum, skrifaði undir samning út tímabilið 2026, og lék sjö leiki með liðinu í Lengjudeildinni seinni hluta tímabilsins.
Hann er 26 ára vinstri bakvörður sem uppalinn er hjá Þór en hefur einnig spilað með Völsungi, ÍA og KR á sínum ferli.
FRÉTTIR03.12.2024, 06:00
<p>Ally Clark er gengin til liðs við ÍBV og mun taka slaginn með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.</p><p>Hún er fjölhæfur leikmaður sem hefur undanfarið leikið með Odense í Danmörku og Apollon frá Kýpur sem var nálægt því að komast í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í ár.</p><p>Clark kemur frá Bandaríkjunum en hún var í háskóla í Columbia og Colorado áður en hún færði sig yfir til Evrópu.</p>
FRÉTTIR02.12.2024, 22:18
<p>Dagur Ingi Hammer Gunnarsson er genginn til liðs við Leikni frá Grindavík. Hann skrifar undir tveggja ára samning.</p>
FRÉTTIR02.12.2024, 17:30
Það er vika síðan KSÍ tilkynnti að Age Hareide væri hættur sem landsliðsþjálfari Íslands.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
FRÉTTIR01.12.2024, 18:22
Víkingur hefur fengið Daníel Hafsteinsson og Svein Margeir Hauksson frá KA. Báðir riftu þeir samningum sínum við bikarmeistarana.
Daníel, sem er 25 ára, átti virkilega gott tímabil með KA í sumar, skoraði fimm mörk í 25 deildarleikjum og tvö mörk í fjórum bikarleikjum. Hann var á bekknum í liði ársins hér á Fótbolti.net.
Sveinn Margeir, sem er 23 ára sóknarmiðjumaður, verður einungis í um sex vikur á Íslandi næsta sumar þar sem hann er í háskólanámi í Bandaríkjunum.
FRÉTTIR30.11.2024, 06:00
Júlía Margrét Ingadóttir hefur samið um að leika með Fram til næstu tveggja ára en hún kemur til félagsins frá Stjörnunni.
FRÉTTIR29.11.2024, 19:27
Hollenski þjálfarinn Ruud van Nistelrooy var í dag ráðinn nýr stjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Leicester City.
FRÉTTIR29.11.2024, 13:30
Fylkir tilkynnti í dag að Ásgeir Eyþórsson væri búinn að framlengja samning sinn við félagið um eitt ár.
Ásgeir er 31 árs miðvörður sem sagði við Fótbolta.net fyrr í þessum mánuði að hann væri að íhuga hvort hann myndi leggja skóna á hilluna. Hann hefur nú tekið ákvörðun um að taka slaginn með uppeldisfélaginu í Lengjudeildinni næsta sumar.
FRÉTTIR29.11.2024, 09:00
Keflavík hefur gengið frá kaupum á Hreggviði Hermannssyni sem kemur til liðsins úr röðum nágrannanna í Njarðvík.
FRÉTTIR28.11.2024, 15:30
Vestri hefur ráðið Brenton Muhammad sem þjálfara meistaraflokks kvenna hjá félaginu.
<i>„Brenton er öllum hnútum kunnur hjá Vestra,"</I> segir í tilkynningu félagsins.
FRÉTTIR28.11.2024, 10:30
Frank Lampard, fyrrum miðjumaður Chelsea og enska landsliðsins, hefur verið ráðinn stjóri Coventry og skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning.
Lampard tekur við Coventry í sautjánda sæti Championship-deildarinnar, tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið. Hann er ráðinn í stað Mark Robins sem var rekinn eftir sjö ár í starfi.
Þetta er fimmta stjórastarf Lampard sem hefur áður stýrt Derby County, Everton og svo Chelsea tvisvar. Hann hefur unnið við fjölmiðlastörf síðan hann lét af störfum sem bráðabirgðastjóri Chelsea í maí 2023.
Fyrsti leikur Lampard með stjórnartaumana hjá Coventry verður heimaleikur gegn Cardiff á laugardaginn.
FRÉTTIR27.11.2024, 20:29
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson verður áfram þjálfari karla- og kvennaliðs Völsungs en hann skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við félagið í dag.
FRÉTTIR27.11.2024, 17:42
Enska B-deildarfélagið Hull City hefur rekið Tim Walter eftir aðeins átján leiki í starfi en þetta kemur fram í yfirlýsingu félagsins í dag.
FRÉTTIR27.11.2024, 16:40
Elfar Árni Aðalsteinsson er genginn í raðir Völsungs en hann kemur frá nágrönnunum í KA. Elfar er 34 ára framherji sem uppalinn er hjá Völsungi og lék fyrstu árin í meistaraflokki með liðinu.
Hann fór til Breiðabliks fyrir tímabilið 2012 og var þar í þrjú tímabil áður en hann hélt í KA þar sem hann hefur verið síðan. Elfar er þriðji leikjahæsti leikmaður KA í sögu efstu deildar, en efstu fjórir eru allt Húsvíkingar. Í 145 leikjum hefur hann skorað 45 mörk sem er það næstmesta fyrir KA efstu deild.
FRÉTTIR26.11.2024, 15:23
Vestri tilkynnti rétt í þessu að Eiður Aron Sigurbjörnsson hefði endursamið við félagið og er hann nú samningsbundinn félaginu út næsta tímabil.
Eiður nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Vestra eftir að tímabilinu lauk og skoðaði í kringum sig. Niðurstaðan varð sú að hann endursamdi fyrir vestan. Samúel Samúelsson hjá Vestra sagði frá því fyrr í þessum mánuði að félagið myndi ekki bjóða Eiði Aroni samning strax en þegar leið á mánuðinn fóru viðræður um áframhald af stað.
Eiður var valinn besti leikmaður Vestra á tímabilinu. Liðið endaði í 10. sæti Bestu deildarinnar sem nýliði.
FRÉTTIR26.11.2024, 14:21
Andri Rúnar Bjarnason hefur gengið frá samningi við Stjörnuna en félagið staðfestir þetta í tilkynningu núna áðan.
Andri lék á síðasta tímabili með Vestra en hann hefur einnig leikið með BÍ/Bolungarvík, Víkingi, Grindavík, ÍBV og Val hér á Íslandi.
FRÉTTIR25.11.2024, 17:30
Það er komið mikið líf og fjör í íslenska leikmannamarkaðinn og fjallað var um íslenskan táning í dönskum fjölmiðlum.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
FRÉTTIR25.11.2024, 16:50
Norðmaðurinn Age Hareide er hættur sem landsliðsþjálfari Íslands en þetta kemur fram í tilkynningu frá KSÍ.
Í tilkynningunni segir: <i>„Age Hareide hefur ákveðið að hætta sem þjálfari A-landsliðs karla og hefur hann því látið af störfum að eigin frumkvæði. Hareide tók við liðinu af Arnari Þór Viðarssyni í apríl 2023 og stýrði því í alls 20 leikjum. KSÍ þakkar Age fyrir hans störf og óskar honum alls hins besta."</I>
FRÉTTIR25.11.2024, 16:35
Á föstudag greindi Kristján Óli Sigurðsson frá því á <i>X</I> að Lúkas Magni Magnason væri búinn að rifta samningi sínum við KR.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari og yfirmaður fótboltamála hjá KR, staðfesti við Fótbolta.net að búið væri að fella niður samning Lúkasar við félagið.
Lúkas Magni er 19 ára varnarmaður sem kom í KR fyrir tímabilið 2023 frá Breiðabliki. Hann á að baki sjö leiki fyrir unglingalandsliðin.