Fotbolti.net
01.02.20 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Boly og Jota gætu byrjað gegn Man Utd

Willy Boly.

Willy Boly.

Canon

Mynd: Getty Images

Franski miðvörðurinn Willy Boly gæti byrjað gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni kvöld. Boly hefur ekki spilað frá því í október, en hann gæti snúið aftur í kvöld.
Boly braut bein í fæti sínum á æfingu í lok október.

Boly hefur spilað 16 leiki á tímabilinu. Hann mun hjálpa liðinu í ensku úrvalsdeildinni og Evrópudeildinni á seinni hluta þessa tímabils.

Portúgalski sóknarmaðurinn Diogo Jota hefur einnig verið að glíma við meiðsli, en hann er, rétt eins og Boly, tilbúinn að byrja leikinn í kvöld.

Leikur Man Utd og Úlfanna hefst klukkan 17:30. Úlfarnir eru í sjöunda sæti, með jafnmörg stig og Manchester United - 34 talsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.