Mohamed Salah segis vilja vera lengi áfram í herbúðum Liverpool eftir að hafa unnið bæði Meistaradeildina og ensku úrvalsdeildina með liðinu.
Hinn 28 ára gamli Salah kom til Liverpool árið 2017 og hefur raðað inn mörkum síðan þá.
Hinn 28 ára gamli Salah kom til Liverpool árið 2017 og hefur raðað inn mörkum síðan þá.
„Ég get ekki lýst tilfinningunni að hafa við höfum náð að vinna deildina í fyrsta skipti í 30 ár," sagði Salah.
„Ég er mjög ánægður og er að njóta andrúmsloftsins hér. Ég elska þennan stað og ég vonast til að vera lengi hér."
„Andrúmsloftið hér er allt öðruvísi en á öðrum stöðum."
Athugasemdir