Leeds United hefur mistekist að krækja í skotmörk sín á lokadegi sumargluggans en útlit er fyrir að Wilfried 'Willy' Gnonto sé í það minnsta að detta í hús.
Gnonto er 18 ára landsliðsmaður Ítalíu sem hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Zürich í Sviss undanfarin misseri.
Hann á 19 ára afmæli í nóvember og er búinn að skora eitt mark í fjórum A-landsleikjum.
Leeds er talið borga tæpar 10 milljónir punda fyrir Gnonto en sú upphæð getur hækkað umtalsvert með árangurstengdum aukagreiðslum.
Gnonto skoraði 10 mörk í 35 leikjum á síðustu leiktíð.
Athugasemdir