Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 02. apríl 2021 23:30
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho um leikmannakaup: Þetta verður skrítið sumar
Jose Mourinho
Jose Mourinho
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur, býst við að félagaskiptiglugginn verði skrítnari í sumar heldur en síðustu sumur.

Tottenham er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti en liðið er í 6. sæti með 48 stig þegar níu leikir eru eftir af deildinni.

Mourinho vill styrkja liðið í sumar en vildi þó lítið gefa upp. Hann sagði að þetta yrði skrítið sumar.

„Við erum meira í því að einbeita okkur að því sem er í gangi núna frekar en það sem gerist á eftir því en ég er með ýmsar hugmyndir," sagði Mourinho.

„Við deilum hugmyndum og ég segi við þá er ég að tala um mig og Daniel Levy. Við vitum hvað við viljum en á sama tíma þá býst ég við að þetta verði skrítið sumar. Þetta er verður öðruvísi gluggi en þetta hefur verið undanfarin ár. Við erum ekki að hugsa um að berjast fyrir framtíðinni heldur að berjast fyrir stigum til að ná sem bestum árangri á tímabilinu," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner